157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:36]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Klukkan er náttúrlega alltaf jafn furðuleg hér þessi misserin. Ég held nefnilega að það sem þetta snúist um, sérstaklega á þeim svæðum sem við erum að ræða um, eins og í Norðvesturkjördæmi, á Norðvesturlandi og Vestfjörðum, er einmitt veturinn. Það er þá sem þessi þjóðhagslegi ábati er mestur að ná ferðamönnum inn í vannýtta gistingu og nýta þá innviði sem eru til staðar að vetrarlagi. Það hefur komið fram í umsögnum frá bílaleigunum að reikna megi með því að þetta gæti orðið 20–25% hækkun að vetrarlagi, að það gæti orðið meiri hækkun að vetrarlagi en að sumarlagi á bílaleigubílunum. Það gengur mjög hart gegn þeirri þróun sem við viljum sjá í ferðaþjónustunni að vetrarlagi. Ég er hræddur um að þessi þróun hafi tekið mikið og stórt skref til baka þannig að bílarnir fari ekki austur fyrir Jökulsárlón og varla mikið norður fyrir Borgarfjörð með því sem hér er verið að boða.