breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég kom í fundarstjórn áðan vegna þess sem ég sagði og stend við að eru lygar og falsfréttir sem birtast inni á heimasíðu Flokks fólksins og Facebook-síðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar og fleiri. Þar notaði ég orðalagið að leita ásjár forseta. Mér skilst að hér sé ríkari hefð fyrir því að þingmenn biðli til forseta um að hlutast til um að þetta verði leiðrétt. Ég geri það hér með, frú forseti. Ég óska eftir því að forseti hlutist til um að þetta verði leiðrétt vegna þess að það er nú einu sinni þannig, frú forseti, að öll atkvæðin eru skráð í þessu máli eins og í öllum öðrum atkvæðagreiðslum. Það er hægt að fletta upp hvernig hver og einn þingmaður greiddi atkvæði og þá staðfestist það sem ég var að segja, að þetta eru lygar.