157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:40]
Horfa

Lóa Jóhannsdóttir (M):

Frú forseti. Við stöndum hér að kvöldi til, klukkan langt gengin í tíu, að ræða hinn svokallaða bandorm eða frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026. Við stöndum ekki hérna vegna þess að, eða ég stend a.m.k. ekki hér í ræðu vegna þess að mér finnist þetta svo frábært og að þetta sé allt svo æðislegt heldur stend ég hér af því að mér blöskrar allar þessar skattahækkanir sem á að fara að leggja á venjulegt fólk.

Verkstjórn, ræsa vélarnar, nýsköpunarhaust. Þetta eru bara nokkrir af þeim frösum sem hafa verið notaðir. Ég get ekki séð að á næsta ári eigi eitthvað af þessu við hjá þeim. Ég get ekki séð að hæstv. ríkisstjórn búi í sama landi og við hin miðað við það sem ég hef verið að lesa undanfarna daga í frumvörpum. Það eina sem ég heyri í samtölum við fólk er að allt sé orðið svo dýrt. Sama hvar þú stígur niður, það er allt orðið svo dýrt. Það er ekki séns fyrir ungt fólk í dag, eða alla vega mjög erfitt, að eignast eigið húsnæði. Það er lítið sem ekkert eftir í veskinu þegar búið er að borga reikninga í byrjun mánaðar. Það er ákveðin uppgjöf í öllum samtölum, sama hvar þú ert í samfélagi okkar í dag. Fólki finnst heilt yfir eins og það sé ekkert að fara að batna. Þetta er ekkert að fara að lagast. Fólk er búið að bíða svo lengi eftir því að það fari eitthvað að lagast og það fari að létta til en svo er bara gefið út svona frumvarp.

Hvað ákveður hæstv. ríkisstjórn að leggja til? Hún er að auka útgjöld ríkisins það mikið að hún er að fara að skila tugum milljarða í halla á næsta ári. Samhliða því er nú passað að hrósa sér yfir því að næst verði þetta hallalaust — ekki núna, núna ætlum við að gefa í, en næst verður þetta hallalaust. Það er talað eins og það sé bara búið að skila þessu í höfn, þessum næstu hallalausu árum. Þessi hallalausu næstu ár eru komin. Nei, þau eru það ekki.

Hvar á ég að byrja? Ég ætla að byrja á að tala aðeins um veiðigjöldin sem áttu nú að fara öll í að byggja upp vegina okkar. Núna er áætlað að tekjur verði 900 milljónir í stað 7,5 milljarða. Samt var á þeim tíma mikilvægt að stoppa umræðuna með 71. gr. þingskapalaga af því að þetta átti að tryggja að við ætluðum að laga alla vegina okkar en eftir standa 900 milljónir, ekki 7,5 milljarðar.

Síðan eru það vörugjöldin. Það eru áætlaðir um 7,5 milljarðar í hækkun á vörugjöldum á næsta ári. Þetta er verulega íþyngjandi aðgerð sem hefur einfaldlega ekki fengið nógu faglega þinglega meðferð. Þessu er pínu svona hent inn á síðustu stundu. Tilfinningin mín er að það vantaði aðeins upp á í bókhaldinu fyrir næsta ár svo að það myndi ganga upp. Kannski er það ekki rétt metið hjá mér en þetta er tilfinningin. Þetta hefur víðtæk áhrif á einstaklinga og fyrirtæki í landinu okkar. Síðar held ég að tekjurnar muni ekki skila sér, ekki allir þessir 7,5 milljarðar sem eru áætlaðir, því að einstaklingum og fyrirtækjum hefur verið ýtt með þessu út í ótímabærar fjárfestingar til að tryggja að þau geti örugglega keypt á verðinu sem er núna, ekki með vörugjöldunum eftir áramót, þannig að það er búið að kaupa mikið af bifreiðunum núna sem eru inni í þessari 7,5 milljarða hækkun. Það átti að vera inni í því en það er einfaldlega bara búið að kaupa það núna.

Síðan er það samsköttun hjóna og sambúðarfólks. Þetta var tekið upp á sínum tíma eftir að fjölþrepaskattkerfi var tekið upp. Það skiptir gríðarlegu máli fyrir mjög mörg hjón að geta samnýtt skattþrepin sín á milli. Það er áætlað að tekjur af þessu eigi að vera um 2,8 milljarðar. Það þýðir einfaldlega að fyrir vikið eru þetta 2,8 milljarðar sem eru ekki inni í heimilisbókhaldinu hjá fólki á næsta ári. Þetta þýðir að fjölskyldur eru að verða af 2,8 milljörðum sem þær hafa verið að nýta í sitt daglega líf. Það á að leggja þetta niður.

Síðan er það kílómetragjaldið. Það er nú aldeilis búið að ræða það hér. Rúmir 3 milljarðar í tekjur. Fyrst átti þetta bara að vera til jafns við olíugjaldið en það verður víst 3 milljörðum meira sem er tekið af almenningi og fyrirtækjum. Þau fá að borga brúsann þarna. Þetta bitnar sérstaklega á landsbyggðinni og þeim sem munu ferðast mikið um landið hjá okkur. Það á líka við um erlenda ferðamenn sem koma hingað og nýta sér bílaleigubílana þannig að fyrir þau fyrirtæki verður þetta heilmikill kostnaður og flækjustig því það á að leggja þetta á eftir örfáa daga.

Ég sjálf á rafbíl þannig að ég hef verið í kílómetragjaldi síðan það var sett á. Þetta er ekkert auðvelt kerfi. Það tala allir um að þetta sé svo einfalt og auðvelt og að það eigi að lesa á bílinn hjá þér þegar þú ferð með hann í skoðun. Ég hef nú heyrt fjölmörg dæmi um að það hafi kannski gleymst að skrá það óvart þegar bíllinn fór í skoðun, fólk hafi gert ráð fyrir því og síðan komi bara bakreikningurinn seinna meir. Ímyndum okkur þetta þegar allir verða komnir í þetta.

Ofan á alla þessa skatta og öll þessi gjöld sem ég er búin að vera að tala um hér þá á að bætast við krónutöluhækkun gjalda upp á 3,7%, enn þá meiri hækkun á fólk, það á að taka enn meira úr veskjum landsmanna á næsta ári en það á ekki að hækka skatta á venjulegt fólk, það var kosningaloforðið. Rökin fyrir þessu öllu sem hæstv. ríkisstjórn kemur með eru að það þurfi pening í samgöngukerfið okkar, þurfi að laga vegina okkar og það þurfi uppbyggingu. Þetta er eitthvert stef sem ég hef heyrt í langan tíma. Við vitum öll að vegirnir eru ekkert betri þannig að ég hef litla trú á því að þessi gjöld og þessir peningar sem ég er búin að telja hér upp geri eitthvað betra fyrir samgöngurnar okkar en það verður að koma í ljós.