breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Lóu Jóhannsdóttur fyrir fína ræðu. Mig langar rétt að koma inn á vörugjöldin og þann punkt hvað þau koma seint fram. Í 1. umræðu um málið sem við erum að ræða var ekki neitt um vörugjöldin og það liðu þó nokkuð margar vikur þangað til þau komu fram. Þetta var greinilega eitthvert vesen innanbúðar. Mig minnir að minnisblaðið hafi komið 17. október sem snýr að vörugjöldunum, þannig að það leið umtalsverður tími áður en það kom fram. Hvað segir það okkur? Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því hve málið kemur seint fram? Þar með styttist umræðan um málið hér í þinginu, ekkert er t.d. fjallað um það í 1. umræðu. Síðan langar mig að vita hvaða skoðun hv. þingmaður hefur varðandi áhrifin á neysluhegðun sem snúa að vörugjöldunum, það er þá verið að beina hegðun fólks í ákveðnar áttir. Síðan er það þriðji punkturinn hvort ekki sé harla ólíklegt að tekjurnar skili sér. Við sjáum hver þróunin hefur verið í sölu á bílum á síðustu vikum ársins, gríðarlega mikil sala, og forskráning bíla er að slá öll met eins og við sáum í nóvember. Það verður líka áhugavert að sjá hver forskráning bíla er í desember og hvort ekki megi þá vænta þess að það verði umtalsvert lægri skattar af vörugjöldum af bílunum en þessir 7,5 milljarðar og hvort það verði ekki bara nær 3 eða 4 milljörðum, sérstaklega ef við hugum að því að bílaleigur eru að kaupa mikið af bílunum núna og þær eru um helmingurinn af allri sölu í landinu undanfarin ár.