157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:53]
Horfa

Lóa Jóhannsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna. Það er einmitt fremur áhugavert hvað þetta kemur seint inn og að þetta hafi ekki verið til umræðu í 1. umræðu. Ég tel ástæðuna vera, eins og ég nefndi í ræðu minni — eða það er mín tilfinning að það hafi mögulega vantað inn í bókhaldið og að ástæðan fyrir því að þetta kemur svona seint inn sé sú að það hafi bara átt að drífa þetta í gegn. Það átti bara að koma þessu í gegn með öllu hinu svo að þetta tæki bara gildi sem allra fyrst. Ég sé ekki að 7,5 milljarðar eigi eftir að skila sér í bókhaldið, ekki miðað við fjölda bíla sem hafa verið nýskráðir undanfarið eftir að fyrirtækin heyrðu af þessu. Og 3–4 milljarðar, ætli það sé ekki bara frekar bjartsýnt líka. Það verður að koma í ljós.