breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Lóu Jóhannsdóttur um áhrif á ferðaþjónustuna sem tengjast náttúrlega sérstaklega bílaleiguþætti ferðaþjónustunnar sem tengist bæði vörugjöldunum og kílómetragjaldinu og því sem er boðað. Það er ljóst að það verður mikið áfall nú á fyrstu mánuðum ársins þó ekki væri nema bara fyrir þá sölu sem nú þegar hefur farið fram af hálfu bílaleiganna. Ég held að það hafi komið fram í umsögnum eða opinberlega að Bílaleiga Akureyrar – Höldur sé t.d. búin að selja 120.000 daga nú þegar fyrir næsta ár og bílaleigumenn bera kostnað af þessu. Þar eru tölur nefndar sem eru þá öðru hvorum megin við einhverjar 100 milljónir, bara þessi einstaki þáttur. Það sem mig langaði helst að fá fram eru áhrifin sem verða af þessu þegar við erum kannski að sjá verðhækkanir að vetrarlagi; það er einmitt mikið keppikefli ferðaþjónustunnar að ná betri nýtingu þá, sérstaklega á landsbyggðinni, á stöðum sem eru fjærst Reykjavík, höfuðborgarsvæðinu. Þegar tölurnar eru 20–25% hækkun á bílaleigubílum að vetrarlagi og kannski 10–15% að sumarlagi verður þetta ekki mjög stór áhrifaþáttur þegar við ræðum aftur neysluhegðun eins og í fyrra andsvari þegar erlendir ferðamenn eru að skoða ferðir til Íslands? Þeir skoða fyrst og fremst verðið á fluginu, gistingunni og vegna sérstöðu á Íslandi, vegna þess hversu margir erlendir ferðamenn leigja bíla hér á landi — 64% þeirra sem koma — eru þetta eiginlega kannski þeir þrír punktar sem ráða því hvort farið verður í Íslandsferðina eða ekki.