breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Hann spyr um áhrif á ferðaþjónustuna. Þetta verður auðvitað mjög mikið áfall fyrir ferðaþjónustuna í byrjun næsta árs, sérstaklega í kostnaði. Þetta verður auðvitað til þess að ferðamaðurinn mun ekki ferðast langar leiðir á landsbyggðinni en bara á þá staði sem eru allra næst höfuðborginni. Austurland og Vestfirðir munu verða af öllu því sem ferðamaðurinn kemur með með sér. Hótelin munu örugglega tapa helling á þessu líka því fólk mun einfaldlega í miklu minna mæli ferðast alla leið austur og á Vestfirðina eftir að þessu verður komið á.