157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[21:58]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða bandorminn svokallaða og aðgerðir ríkisstjórnarinnar nú á þessu hausti í efnahagsmálum. Þetta eru mjög kaldar kveðjur sem ríkisstjórnin er að senda til heimilanna og fyrirtækjanna í landinu því að eins og hér hefur ítarlega verið bent á undanfarna klukkutíma í ræðum hér á Alþingi og víðar þá eru ótrúlega harkalegar skattahækkanir fram undan og ekkert tekið tillit til aðvarana og varnaðarorða sem borist hafa í umsögnum og með ýmsu móti til þeirra sem að þessu máli koma.

Við höfum heyrt það og hlustað á það að skattahækkanirnar, sama hvers eðlis þær eru, séu kallaðar leiðrétting, réttlætisaðgerð, glufulokun og menningarframlag. Nú síðast í þætti í ríkissjónvarpinu áðan var einn af forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar að mæla þessum skattahækkunum bót og fullyrti að hér væri ekki um skattahækkanir að ræða heldur væri verið að uppfylla loforð um að breyta kerfum. Nú er það það nýjasta, að breyta kerfum, því hafi nú verið lofað, það var lofað að hækka ekki skatta en þetta snúist núna um að það sé einungis verið að breyta kerfunum. Það er svo sannarlega verið að breyta kerfum með þessum skattahækkunum sem við skulum bara kalla réttum nöfnum. Það er verið að breyta kerfi um kílómetragjald m.a. sem mér er sérlega hugleikið vegna víðtækra áhrifa sem þær munu valda, þessar breytingar á kerfum, sem er nýtt orð yfir skattahækkun, og bent hefur verið á í fjölda umsagna og samtala sem þingmenn hafa fengið að undanförnu frá eins og Samtökum ferðaþjónustunnar.

Það er verið að gera þessi kerfi flóknari og þá um leið kostnaðarsamari og erfiðara að fylgja þeim og skilja. Það er ekki rétta leiðin til að liðka fyrir í umhverfi fyrirtækja þegar við þyrftum frekar að vera að létta á kerfunum, þyrftum frekar að leita leiða til að minnka álögur og gjöld, þyrftum frekar að leita leiða til að stytta boðleiðir í kerfinu, í gegnum byggingarreglugerðir, í gegnum öll þessi kerfi sem við höfum verið að byggja upp og eru orðin allt of flókin oft og tíðum. Við þurfum ekki að flækja þau enn meira. Ég held að það sé samdóma álit okkar allra.

Ég verð að segja að það er svo sérkennilegt að horfa upp á það t.d. að sérstaklega einn stjórnarflokkanna, Viðreisn, sem hefur nú reynt að koma fram, í aðdraganda kosninga a.m.k., sem svona frekar borgaralega og hægri sinnaður flokkur, sýni sitt rétta andlit. Hann tekur þátt í þessu ríkisstjórnarsamstarfi eins og ekkert sé, flækir kerfin, hækkar skatta, gerir hlutina erfiðari fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki í landinu, þvert á það sem kjósendur hafa eflaust haldið að myndi gerast. Kaldar eru kveðjurnar. Það er ekki hægt að segja annað.

Eins og ég sagði hérna áðan eru kílómetragjöldin mér mjög hugleikin því að mér finnst erfitt að horfa upp á það hvernig verið er að íþyngja fjölskyldum. Það eru til reikningsdæmi um að þessi kerfisbreyting, skattahækkun sem heitir kerfisbreyting, geti valdið tugþúsunda kostnaðarauka á ári og jafnvel meira en það fyrir meðalfjölskyldu. Þannig að þetta er að fara að hafa áhrif beint inn á heimilin. En kílómetragjaldið er mér sérstaklega hugleikið því að það hafa komið svo sannfærandi rök fyrir því hvaða áhrif það mun hafa á ferðaþjónustuna sem maður óttast svo að sé næsta atvinnugreinin sem verði fyrir barðinu á þessari vinstri stjórn og hennar aðgerðum. Það er augljóst og maður óttast að áhrifin verði meiri en nokkurn grunar í dag eins og þingmenn hafa lagt mikinn þunga á hérna í ræðum sínum. Við erum að enduróma þær áhyggjur sem forsvarsmenn þessarar mikilvægustu útflutningsgreinar landsins í dag eru að koma á framfæri í ræðu og riti, umsögnum, fundahöldum, í fjölmiðlum og hvar sem þeir koma málstað sínum að.

Hér eru þingmenn sem tóku þátt í síðasta ríkisstjórnarsamstarfi, þegar innviðagjald á skemmtiferðaskip fór í gegn á síðustu metrum starfsstjórnar rétt fyrir kosningar, auðmjúkir að lýsa því að það hafi verið mistök að ganga svona langt og að menn skyldu læra af þeirri reynslu því við vitum að farþegar með skemmtiferðaskipum skipuleggja sínar ferðir með tveggja eða þriggja ára fyrirvara. Við fáum af því fréttir að það sé þegar farið að hafa áhrif á komandi misserum og menn hafa af því verulegar áhyggjur.

En þetta bætist svo við. Þá er enn meiri ástæða til að hafa áhyggjur af þessari mikilvægu atvinnugrein sem blómstrar hér úti um allt land í dreifbýli og þéttbýli og hingað og þangað um landið þar sem einstaklingar og lítil fyrirtæki, meðalstór og stærri hafa fundið hugmyndum sínum farveg og hafa blómstrað í alls kyns ferðaþjónustu, fjölskyldur fengið nýtt lífsviðurværi og allir njóta góðs af. Ef bílaleigubílum fer mjög fækkandi og ferðamönnum samhliða og sérstaklega ef bílaleigubílar fara bara á tiltekna staði, fara ekki eins langt og þeir gera í dag þá segir sig sjálft að það hefur áhrif á fyrirtækin á þeim stöðum sem eru fjær höfuðborgarsvæðinu. Er það það sem við viljum? Ekki bara að þetta séu kaldar kveðjur til heimila og fyrirtækja í landinu, þetta er bara landsbyggðarskattur.

Það er alveg með ólíkindum að horfa upp á þetta raungerast og að aðilar sem standa að þessari ríkisstjórn skuli ekki horfast í augu við það, skuli ekki bíða með þessi áform, taka samtalið, gera þetta í samráði við t.d. ferðaþjónustuna sem hefur boðist til að koma til samtalsins, hefur lagt fram sínar hugmyndir að því hvernig hægt er að breyta þessum kerfum, ef það er svona mikil þörf á því, með meiri aðlögun, meiri aðlögunartíma, því að eins og við vitum og þeir sem hafa eitthvað komið nálægt rekstri fyrirtækja, bara svo sem eins og í rekstri heimilanna, þá þarf að vera ákveðinn fyrirsjáanleiki fyrir hendi til að hægt sé að ætla sér næstu misserin og árin að hafa tekjur og lífsviðurværi af rekstri fyrirtækja og hafa fólk í vinnu og þar fram eftir götunum. Fyrirsjáanleiki er öllum gríðarlega mikilvægur. Það að skella þessu á með þessum stutta fyrirvara og taka ekki neitt tillit til þeirra viðvarana og athugasemda sem fram koma óttast maður að verði ansi dýrkeypt.