breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Mig langar að koma hér upp í framhaldi af fyrri ræðu minni hér í þessari umræðu um bandorminn svokallaða eða skattorminn, eins og farið er að kalla hann hér á göngunum að undirlagi hv. þm. Vilhjálms Árnasonar. Mig langar í framhaldi af fyrstu ræðu minni að vekja athygli á verklaginu við þennan bandorm; verklaginu við það að innleiða miklar kerfisbreytingar og gríðarlega miklar skattahækkanir. Við vitum það að í gegnum bandorminn er hægt að koma ýmsum breytingum í gegnum þingið, jafnvel umdeildum breytingum sem ættu alla jafna að kalla á sjálfstæða og ítarlega umræðu og tilheyrandi mat, enda erum við hér að ræða miklar og stórar breytingar á skattkerfinu. Við ættum að velta því fyrir okkur, m.a. í ljósi umsagna sem hafa borist, m.a. frá ferðaþjónustuaðilum í tengslum við þetta mál, hvort þessi háttur sem er hafður á almennt séð sé til þess fallinn að auka gagnsæi og ábyrgð og gera almenningi auðveldara fyrir að átta sig á því hvaða ákvarðanir eru teknar, af hverju og hvaða afleiðingar þær hafa. Þarna erum við að tala um milljarða skattahækkanir.
Virðulegi forseti. Við sem vöruðum við þeim flokkum sem nú stýra þessu landi í aðdraganda kosninga erum kannski ekki eins hissa á þessum bandormi, sem við erum að ræða hér í kvöld, og margir aðrir. En ríkisstjórnin hefur auðvitað nú þegar afhjúpað trú sína á því að lausnin á öllum helstu áskorunum í ríkisfjármálum sé aukin skattheimta. Ekki hagræðing, ekki forgangsröðun eða raunveruleg endurskoðun á útgjöldum ríkisins, eins og hv. þm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kom m.a. inn á í ræðu sinni hér fyrr í kvöld. Nei, aukin skattheimta. Það er áhyggjuefni, ekki síst þar sem við höfum hér eina hæstu skatta sem fyrirfinnast í alþjóðlegum samanburði. Þetta eru tölur sem ég hef kallað hér fram í þinginu og liggja fyrir svart á hvítu og voru með því fyrsta sem ég gerði þegar ég tók fyrst sæti á síðasta kjörtímabili, þ.e. að kalla fram upplýsingar um það hvernig skattheimtu er háttað hér á landi í alþjóðlegum samanburði.
Í því samhengi nefni ég það, virðulegi forseti, að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram fjölmargar raunhæfar tillögur að hallalausum fjárlögum sem voru allar felldar af þessum stjórnarmeirihluta. Skattheimtan sem hefur verið lagt upp með beinist ekki að almenningi, það var nú uppleggið, ekki að almenningi og ekki að venjulegu fólki. Þetta voru yfirlýst og margítrekuð loforð, m.a. frá formönnum Samfylkingarinnar og Viðreisnar á ferð og flugi um allt land fyrir kosningar. Og á hverjum skyldi nú þessi stefna ríkisstjórnarinnar bitna? Jú, hún bitnar einmitt á almenningi, venjulegu fólki, fjölskyldum, smærri fyrirtækjum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og fólki í dreifðum byggðum sem hefur síður færi á að bregðast við auknum álögum. Þegar gjöld á eldsneyti, bifreiðar og akstur eru hækkuð, svo einhver dæmi séu tekin, þá blasir auðvitað við hverjir munu finna fyrir því.
Virðulegi forseti. Í þessu samhengi vil ég ítreka það sem kom fram í fyrri ræðu minni varðandi tímasetninguna. Við stöndum nefnilega frammi fyrir kólnun í hagkerfinu, samdrætti í lykilatvinnugreinum og vaxandi óvissu. Þá á ekki að herða ólina á þeim sem skapa hér verðmæti heldur tryggja stöðugleika og fyrirsjáanleika.
Virðulegi forseti. Hér í þessari ræðu vil ég draga fram eitt atriði sem hefur að mínu mati ekki fengið nægilega athygli í þessum umræðum en hv. þm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kom reyndar líka inn á þetta í sinni ræðu. Þetta er atriði sem hefur klárlega mikil áhrif, m.a. á stöðu íslensks atvinnulífs, sem er hækkun krónutöluskattanna. Í frumvarpinu sem hér er til meðferðar er gert ráð fyrir að krónutöluskattar hækki um 3,7% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins. Þetta kann að hljóma eins og eitthvað sem er smávægilegt en í rauninni merkir það það að skatthlutföll sem eru bundin krónutölu hækka verulega í krónum talið fyrir öll heimili, fyrir öll fyrirtæki og fyrir allar rekstrareiningar í landinu.
Í umsögn Félags atvinnurekenda við málið kemur einmitt fram að þessi nálgun sé ekki til þess fallin að styðja við stöðugleika í hagkerfinu. Félagið gagnrýndi þar að ríkisvaldið stuðli að áframhaldandi verðbólgu og verðbólguvæntingum með því að miða krónutöluskattahækkanir við verðbólgu sem er hærri en markmið Seðlabankans. Í staðinn telur félagið réttara að miða hækkunina við verðbólgumarkmið Seðlabankans og leggur þannig til að krónutöluskattar hækki ekki um meira en 2,5%. Það hefur einmitt verið verklag síðustu ríkisstjórnar og meiri hlutans hér á þingi undanfarin ár.
Þessar tillögur félagsins, sem hafa verið viðhafðar hér við þinglega meðferð síðustu ár, myndu stuðla að meiri stöðugleika, lægri verðbólguvæntingum og auknum fjárfestingarvilja. Þessi prósentutala, þótt, eins og ég sagði, hún gæti hljómað lítilvægleg, snertir hagsmuni okkar allra. Þegar skattar eru hækkaðir umfram verðbólgumarkmið er ríkisvaldið í reynd að taka þátt í að viðhalda og auka verðbólguvæntingar. Það er óæskilegt, sérstaklega þegar aðrir aðilar eins og verkalýðshreyfingin og fjölmargir atvinnurekendur hafa haldið á lofti háværum viðvörunum um að blikur séu á lofti í efnahagsmálum eins og kom m.a. fram í umsögn, ef mig minnir rétt, Alþýðusambands Íslands.
Virðulegi forseti. Þegar við skoðum þetta í samhengi við aðrar skattahækkanir sem frumvarpið gerir ráð fyrir þá sjáum við ákveðið mynstur sem leiðir til þess að við förum að hafa réttmætar áhyggjur af því að við séum að draga úr samkeppnishæfni atvinnulífsins. Þetta er dregið ágætlega saman í nefndaráliti 2. minni hluta nefndarinnar. Það er afleiðingin af því að við búum íslensku atvinnulífi hér lakara rekstrarumhverfi heldur en þekkist í samanburðarlöndum okkar. Aukinn kostnaður við rekstur, m.a. vegna hækkandi krónutöluskatta og áfengis- og vörugjalda, leggst þungt á framleiðslu- og þjónustuaðila og smitast síðan út í hækkandi vöruverð fyrir neytendur. Þegar atvinnugreinar eins og ferðaþjónustan og smærri framleiðendur standa frammi fyrir þessum hækkunum samhliða auknum launakostnaði er skrýtið að þeir veifi flagginu, reyni að ná athygli okkar með öllum tiltækum leiðum um að blikur séu á lofti eins og fjölmargir tölvupóstar sem okkur þingmönnum hafa borist á undanförnum dögum bera merki um?
Virðulegi forseti. Meiri hlutinn hefur þegar séð að sér og hlustað á einhver af víðtækum varnaðarorðum Sjálfstæðismanna. Meðal annars hafa stórfelldar breytingar á erfðafjárskatti verið dregnar til baka. Þótt ég sé ekkert mjög bjartsýn eftir fjárlagaafgreiðsluna þá ætla ég samt að leyfa mér að vona að einhverjar af þeim tillögum sem við höfum lagt hér fram og gagnrýni sem við höfum haldið á lofti muni ná í gegn og hafa áfram jákvæð áhrif á ákvarðanatöku meiri hlutans í þinginu. Gagnrýni okkar er ekki sett fram í tómarúmi. Hún á sér stoð og stuðning í tugum umsagna sem hafa borist frá atvinnulífinu og fleiri aðilum; gott ef þær voru ekki hátt í 100 bara við þennan anga skattahækkanamála ríkisstjórnarinnar. Við munum því áfram standa vörð um heimilin, fjölskyldurnar og atvinnulífið í landinu.