breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir alveg ljómandi ræðu. Hv. þingmaður kom inn á þessa skattheimtu í sinni ræðu, þ.e. skattheimta, eins og hún orðaði það, samkvæmt þessu frumvarpi og yfirlýsingum, fyrst og fremst yfirlýsingum ríkisstjórnar og meiri hlutans, sem ætti ekki að bitna á almenningi. Þegar frumvarpið er skoðað er allt annað sem kemur í ljós. Mig langar í þessu samhengi að eiga orðastað við hv. þingmann um krónutöluhækkanir sem eru umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem eru 2,5%, en krónutöluhækkanirnar eru 3,7%. Ef við horfum á hvað þessi krónutöluhækkun hefur áhrif á, þessi 3,7%, þetta er 1,2% frá verðbólgumarkmiði. Á hvað hefur hún áhrif? Ég geri mér grein fyrir því að það er hugsanlega snúið fyrir hv. þingmenn að velta því fyrir sér hvaða áhrif svona hækkun hefur á heimilisbókhaldið. Við erum sömuleiðis búin að sjá hækkanir boðaðar í þessu frumvarpi sem snúa að innritunargjöldum í Háskóla Íslands, þ.e. að gjöldin fara úr 75.000 kr. í 100.000 kr., 33% hækkun. Það eru víða músarholurnar sem verið er að fara í. Það er alls staðar verið að ná til og reyna að auka tekjur fyrst og fremst. (Forseti hringir.) Af hverju er ríkisstjórnin að auka tekjur og hvað mætti betur fara?