157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[22:20]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og fyrir að hrósa mér fyrir ræðuna. Ég hafði áhyggjur af því að hún hefði þreytt einhverja. Ég heyrði geisp einhvers staðar í salnum og hafði áhyggjur af því. Ég heyrði a.m.k. að hún átti upp á pallborðið hjá hv. þingmanni. Af því að hv. þingmaður kom inn á þessi fyrirheit um að þessar skattahækkanir ættu ekki að bitna á almenningi þá kom ég inn á það einhvern tímann, ég man ekki hvort það var í fyrri ræðu minni hér eða einhvern tíma í þessu stappi sem við höfum staðið í gegn þessum skattahækkunum, að ég skoraði á almenning að fara yfir þessar skattahækkanir og reyna að finna sér ekki stað þar á meðal; hverjir það væru eiginlega sem væru undanskildir öllum þessum skattahækkunum. Spyr sú sem ekki veit, segi ég bara aftur.

Ég kom aðeins inn á það í minni ræðu áðan, sem ég heyrði að hv. þingmaður hlustaði vel á, hvaða áhrif þessi 3,7% hækkun hefði. Ég fór yfir það að hún hefði áhrif á heimilin, fyrirtækin og allar rekstrareiningar. Þótt þetta hljómi eins og lítil hækkun, 3,7% í staðinn fyrir 2,5% sem hefur verið verklagið hérna áður til að reyna einmitt að espa ekki upp verðbólguna og fara ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem er einmitt það sem er varað við í fjölmörgum umsögnum um þetta mál, þá kom hv. þingmaður inn á það að við áttum okkur kannski ekki á hvað þetta þýddi í krónum og aurum talið. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki lagst yfir útreikninga á því en það væri kannski bara verðugt verkefni fyrir næstu ræður; að taka nokkur konkret dæmi um það hvað þetta þýðir í krónum og aurum talið, t.d. fyrir venjuleg heimili. Það er kannski bara verðugt verkefni fyrir okkur hér inn í kvöldið.