157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[22:22]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Nú háttar þannig til að hv. þingmaður, ef ég man rétt, sat í efnahags- og viðskiptanefnd á síðasta kjörtímabili þannig að hv. þingmaður hefur töluverða reynslu af því að eiga við mál keimlík þessu, þ.e. þessa bandorma sem við köllum breytingar sem tengjast fjárlögum. Ég vil beina því til hv. þingmanns og vissulega, eins og maður segir, erum við aðeins að velta á milli okkar hugmyndum um það hvað við hefðum gert sem vorum í stjórnarmeirihluta á síðasta kjörtímabili ef við hefði blasað að við hefðum þurft að ná saman endum einhvers staðar í ríkisbókhaldinu. Hefðum við farið í það að reyna að fara í allar músarholur, matarholur sem til væru til þess að auka tekjur ríkisins? Eða hefðum við farið þá leið að reyna að draga úr útgjöldum ríkisins? Vissulega hefur það verið þannig í gegnum árin, og það var líka í tíð okkar, að útgjöld ríkisins jukust milli ára. En nú erum við að sjá sennilega mestu aukningu í útgjöldum á milli ára frá því, hvað, 2009? (DME: … fyrir það.) Eða fyrr, ég er ekki alveg klár á því en hv. þingmaður veit það sennilega betur. Þetta eru gríðarlegar breytingar sem hafa orðið og miklar sviptingar í útgjöldum. (Forseti hringir.) Hvað hefði hv. þingmaður gert ef hún réði núna?