157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[22:25]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Já, vissulega sat ég í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og það vill nú reyndar þannig til að ég stýrði þeirri nefnd undir lok síðasta kjörtímabils þegar stjórnarsamstarfinu var nokkuð óvænt slitið og við fórum í kosningar. Þá var það reyndar svo að einn af stjórnarflokkunum sagði sig úr samstarfinu þannig að við kláruðum fjárlögin, eins og frægt er orðið, á þann skemmtilega máta að við vorum í raun í minnihlutastjórn. Við vorum að reyna að baksa við þetta, Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn, í raun bara allir þingmenn saman. Það var ótrúlega merkilegt og ég er reynslunni ríkari að hafa farið í gegnum þetta, að hafa þurft að taka í raun átta samtöl um hvert einasta smáatriði þegar við vorum að fara í gegnum bandormana og síðan líka við fjárlaganefnd því þetta var auðvitað samstarfsverkefni.

Hv. þingmaður spyr: Hvað hefðum við gert? Það er bara komin ágætisreynsla á það. Í samstarfi fjárlaganefndar og efnahags- og viðskiptanefndar á nákvæmlega þessum tímapunkti, rétt fyrir kosningar á kosningaári, þegar allir voru að biðja um allt og það var auðvitað mjög freistandi að lofa öllum því sem var umbeðið og snúa síðan almenningi á hvolf og hrista meira úr vösunum. Auðvitað var það freistandi. Maður var líka í kappi við tímann að reyna að komast út á akurinn og tala við fólk. En það var ekki svo. Við lögðumst undir feld og vorum hér dögum saman, sólarhringum saman, að reyna að finna á þessu lausn; hvernig við gætum hagrætt, hvernig við gætum forgangsraðað og hvernig við gætum endurskoðað útgjöld ríkisins. Hver var niðurstaðan? Þessi ríkisstjórn er að leggja til, eins og hv. þingmaður kom inn á, 143 milljarða útgjaldaaukningu sem á sér ekki viðlíka aukningu frá því einhvern tímann fyrir hrun þegar við vorum auðvitað á allt öðrum stað. Á þeim tíma sem við vorum að koma saman okkar fjárlögum þá vorum við að horfa fram á 70 milljarða útgjaldaaukningu á kosningaári í kappi við tímann og við þessar aðstæður þar sem við vorum auðvitað ekki með eiginlegan meiri hluta í þinginu. (Forseti hringir.) Þannig að það er bara komin ágætisreynsla á það hvernig við vinnum við þessar aðstæður.