breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Hér er bandormurinn illræmdi til umræðu og einnig skattahækkanir á skattahækkanir ofan. Mig langar aðeins að ræða hér hvaða áhrif þessar skattahækkanir munu hafa á ferðaþjónustuna, á bílaleigur og annað slíkt. En áður en ég byrja á því langar mig að vekja athygli þeirra sem nú eru að horfa á því hvernig þingmenn meiri hlutans vinna. Við skrifum undir drengskaparheit sem segir að við eigum að fylgja sannfæringu okkar í hverju máli fyrir sig og það er nokkuð ljóst að sannfæring meiri hlutans er öll eins. Hér fyrr í vetur var tekið til afgreiðslu mál sem er algerlega ópólitískt. Stjórnarandstaðan ýtti á grænt, rautt og gult, sem þýðir á móti, með og sit hjá, en allur stjórnarmeirihlutinn ýtti á grænt eða já. Um var að ræða gæludýrafrumvarp hæstv. félagsmálaráðherra, um að hafa megi gæludýr í fjölbýlishúsum. Það er alveg ljóst að í stjórnarmeirihlutanum voru einhverjir á móti þessu, það er alla vega mín trú.
Það sama á við hér um kílómetragjaldið. Ég hef heyrt það sjálfur hér á göngunum að það eru þingmenn, sérstaklega landsbyggðarþingmenn stjórnarmeirihlutans, sem fylgja ekki eigin sannfæringu í því máli. Og hvers vegna? Það er einhvers konar húsbóndavald sem stýrir því, virðist vera. Þessir meirihlutaþingmenn gera sér fulla grein fyrir því, eins og minni hlutinn hér á Alþingi, að þetta kílómetragjald er stórkostlega skaðlegt fyrir marga og sérstaklega fyrir lítil ferðaþjónustufyrirtæki sem eru aðeins lengra frá höfuðborgarsvæðinu. Hvernig hefur ferðaþjónustan það? Ég get svarað þeirri spurningu sem ég spyr hér sjálfur: Afkoma fyrirtækja í ferðaþjónustu hefur dregist saman um 56%. Það er áður en kílómetragjaldið kemur ofan á og áður en vörugjöldin koma ofan á. Og svo að við skoðum einhverja undirþætti í ferðaþjónustunni, hvaða undirþættir það eru sem hafa fengið mesta höggið, þá kemur það fram hér að hjá bílaleigum landsins er 73% samdráttur. Bílaleigur á Íslandi hafa ákveðna sérstöðu vegna þess að 70% þeirra sem nota þær eru útlendingar. Samdrátturinn er 73% og þar eru 70% viðskiptavina útlendingar. Landið okkar er þannig að það er ofboðslega falleg náttúra víða þannig að ferðamenn þurfa að nota bíl til að ferðast um landið og skoða náttúruna. Það góða við það er að þegar ekki hefur verið kílómetragjald þá hafa ferðamenn ekki vílað fyrir sér að fara lengra frá höfuðborginni. Núna eru kannski bændur sem eru með ferðaþjónustu á Höfn í Hornafirði, einhvers staðar í Miðfirði eða á Vestfjörðum — þau fyrirtæki eru í raun í stórhættu á að fá ekki þessa ferðamenn til sín. Ferðamennirnir munu skoða hve langt er þangað og reikna út hve kílómetragjaldið er hátt og munu stytta ferðina. Fyrir vikið mun radíus eða vegalengd ferðamanna frá höfuðborgarsvæðinu styttast. Það liggur algerlega ljóst fyrir. Það þýðir ekki fyrir stjórnarmeirihlutann að koma eftir á og tala um þetta þegar þetta verður ljóst, eins og gerðist með komur skemmtiferðaskipa sem í varð hrun þegar innviðagjaldið var sett á. Það sama mun því miður gerast hjá ferðaþjónustufyrirtækjunum í aðeins dreifðari byggðum; markaðurinn mun að öllum líkindum hrynja hjá þeim og þessi súrefnisinnspýting inn í hinar dreifðu byggðir landsins — menn munu bara slökkva á henni eins og á ljósi á kerti. Því miður.