breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Við erum hér enn og aftur að ræða skattamál hæstv. ríkisstjórnar. Það sem mig langaði að koma inn á, og hef ekki getað komið inn á í fyrri ræðum, er það hvernig vörugjöldin draga úr öryggi bíla í umferð og endurnýjun þannig að bílarnir verði umhverfisvænni og skapi betri loftgæði. Þegar fjölskyldubíllinn, heimilisbíllinn, verður svona dýr eru færri heimili sem hafa efni á því að endurnýja ökutækið og kaupa annað með hærri öryggisstöðlum. Það þarf að fara að leita í ódýrari bifreiðar sem eru með minni öryggisstaðla og bíla sem menga þá meira og eru eyðslufrekari. Með því að hækka vörugjöldin svona ítarlega eins og hér er gert, í staðinn fyrir að afnema þau, erum við að draga úr möguleikum tekjulægra fólks á að eiga öruggari bíla, nýrri og umhverfisvænni bíla sem menga minna. Svo gerist það að fjölskyldur stækka og við þurfum á því að halda að fjölskyldur séu fjölmennari, að þar séu fleiri börn. Sem betur fer er fjöldi fjölskyldna með mörg börn. Þá þurfa þær að kaupa sér bíla sem geta tekið fleiri farþega og þeir bílar falla flestir undir efsta vörugjaldaflokkinn, það þarf að borga af þeim 65% vörugjöld, sérstaklega ef þeir eru amerískir. Þeir bílar fá alltaf hæstu vörugjöldin og það er verið að fara að hækka þau núna upp í 70%. Fjölmennar fjölskyldur eru að fara að borga mjög há vörugjöld. Þegar fjölskyldubíllinn er orðinn svona dýr þá er enn minni möguleiki að kaupa nýrra, öruggara og umhverfisvænna ökutæki. Þetta hefur því gríðarlega neikvæð áhrif á margan hátt.
Þessi háu vörugjöld verða líka til þess að bílaleigurnar sem kaupa meiri partinn af bílunum eða yfir helminginn, og stýra því þannig svolítið hvernig ökutæki eru á íslenskum markaði, kaupa þá ódýrari og minna örugga bíla til að þær hafi efni á þeim. Þar af leiðandi eru þær kannski ekki með þau ökutæki sem tekjuhærri ferðamennirnir, eins og frá Ameríku, eru að leigja. Við fáum því minni gjaldeyristekjur og það eru fleiri ökutæki með minni öryggisstaðla á ferðinni við íslenskar aðstæður með óvönum ökumönnum. Þeir bílar fara svo út á eftirmarkað þar sem fjölskyldurnar kaupa þá. Það hefur því víðtæk áhrif að hækka vörugjöldin svona gríðarlega þegar við ættum miklu frekar að draga úr þeim. Svo er það náttúrlega komið í ljós að ætlaðar tekjur skattastjórnarinnar af þessum vörugjöldum á næsta ári munu ekki skila sér, þær munu alls ekki skila sér, hvorki tekjurnar af vörugjöldunum né af virðisaukaskattinum af þessum ökutækjum. Enn og aftur kemur það í ljós að hæstv. ríkisstjórn ætlar að pissa í skóinn sinn. Af því að hún getur ekki hamið útgjöld sín þá sækir hún dýpra í vasa fólks sem þarf að eiga ökutæki en þarf núna að kaupa sér eldri, eyðslufrekari og óöruggari ökutæki út af enn hærri álögum frá hinu opinbera á innflutning á ökutækjum. Almennt eru ökutæki ekki framleidd hér á Íslandi, nema einstaka bíll, þannig að það er engin þörf fyrir einhverja tolla á ökutæki. Við ættum því að vera að finna leiðir hér til að afnema vörugjöld frekar en að hækka þau.