157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:05]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir þennan úrskurð og þær röksemdir sem hér eru upp lesnar. Ég hef gert athugasemd við þetta og það er þá ágætt að það liggi fyrir, það gagnsæi sem hér hefur orðið með úrskurði forseta. En það sem ég hef verið að benda á er að það er 7,5 milljarða skattahækkun sem liggur ekki fyrir í því frumvarpi sem við höfum verið að fjalla um. Af hverju erum við með þessar reglur? Hver er tilgangur þess að hér eigi mál að fara í gegnum þrjár umræður í þinginu? Fyrir okkur þingmenn er það auðvitað þannig að við getum áttað okkur á hlutunum en (Forseti hringir.) það er ekki síst fyrir þau sem þurfa að umgangast þessi lög og þessar reglur að þau átti sig á því að aðilar úti í bæ geta sent inn umsagnir um þingmál, þannig að vönduð lagasetning byggir auðvitað á því að hér fari mál í gegnum þrjár umræður og öllum umsagnaraðilum sé ljóst hvað liggur fyrir. Og því miður, frú forseti, þá var það ekki í þessum máli.

Umsagnaraðilum sem sendu inn umsögn um bandorminn var ekki ljóst að það væri 7,5 milljarða hækkun á sviði vörugjalda. Og þeir atvinnuumsagnaraðilar sem sendu umsögn um það gerðu það eingöngu vegna þess að þeir þurftu að fylgjast með heimasíðu Alþingis (Forseti hringir.) og lesa minnisblað frá ráðuneytinu.

Frú forseti. Ég þakka þennan úrskurð en mér finnst hér ekki um vandaða lagasetningu að ræða. Ég vona (Forseti hringir.) að hæstv. ríkisstjórn taki það til sín og standi sig betur næst.