157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:08]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd óskuðu eftir því við ráðuneytið að endurreikna forsendur vörugjalda eftir að fjölmargir umsagnaraðilar höfðu komið fram og tjáð nefndinni að þær væru brostnar. Svar ráðuneytisins kom: Það væri ekki þörf á slíkum endurútreikningum en, virðulegur forseti, það var ekki það sem nefndin var að óska eftir, hvort það væri þörf á endurútreikningi eða ekki. Nefndin var að óska eftir gögnum frá framkvæmdarvaldinu. Alþingi Íslendinga, þingnefndin, var að óska eftir því við framkvæmdarvaldið að það kæmu fram gögn, að forsendur vörugjalda yrðu endurreiknaðar. (Forseti hringir.) Það getur ekki verið í lagi, virðulegur forseti, að beiðni frá þingnefnd sé hafnað af framkvæmdarvaldinu. Það hlýtur að vera Alþingis að ráða hvaða gögn og hvaða upplýsinga það óskar eftir og hvaða gögn og upplýsingar það fær, virðulegur forseti.