úrskurður forseta.
Frú forseti. Það ber margt að sama brunni í þessum málum. Hæstv. ríkisstjórn, hæstv. utanríkisráðherra, gerir samning, án þess að ráðfæra sig að neinu marki við utanríkismálanefnd, milli fjögurra landa, auk Íslands, Bretlands, Færeyja og Noregs, um skiptingu hlutdeildar í makríl. Síðast í gær sagði hæstv. utanríkisráðherra að hún stæði í hagsmunavörslu fyrir Ísland. Hlutdeild Íslands í makrílnum fer úr 16,5% niður í 10,5%. Lækkun um 5%, fer niður í 10,5%. Er þetta hagsmunagæsla fyrir Ísland? Við erum búin að veiða makrílinn í yfir tvo áratugi og þetta er árangurinn, frú forseti.