157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:12]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar um vinnulag í utanríkismálanefnd þá vil ég taka það fram við þingheim að þann 10. nóvember síðastliðinn fór fram fundur í utanríkismálanefnd þar sem 8. liður á dagskrá hét fiskveiðisamningar. Utanríkisráðherra mætti á þann fund og sá liður var bundinn trúnaði í samræmi við 24. gr. þingskapa, svo það komi fram. En ég vil líka nefna það að um leið og fréttir bárust af þessum samningum, sem hafa verið gerðir við þessar fjórar þjóðir, óskaði ég eftir fundi við hæstv. utanríkisráðherra og það verður fundur með hæstv. utanríkisráðherra í utanríkismálanefnd í fyrramálið.