úrskurður forseta.
Frú forseti. Ég held að það sé algjör sátt um það hér að það þurfi að byggja upp makrílstofninn. Staða hans hefur hríðversnað á liðnum árum og það er ekki til hags fyrir íslensku þjóðina að standa utan samninga við helstu banda- og samstarfsþjóðir. Það er öflug hagsmunagæsla fyrir Ísland að ná núna samningum í fyrsta skipti um makrílveiðar. Það þjónar ekki íslenskum hagsmunum að halda áfram þeirri vegferð sem sett var hér af stað í tíð fyrri ríkisstjórna, að setja sér ítrekað einhliða aflamark og láta eins og ekkert sé. Ísland hefur núna náð samningum í fyrsta sinn og því ber að fagna. Það er íslensk hagsmunagæsla.