157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:14]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er margt skrýtið í kýrhausnum og stundum er alveg ómögulegt að átta sig á því hvað fer þar fram. Það er auðvitað ekki hægt annað en að hafa áhyggjur af þessum samningi sem er búið að gera hér út af makrílveiðum okkar, samningur um deilistofninn. Það er talað um að það sé mikill áfangasigur að ná svona samningi í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd. Samningsdrögum sem hafa verið með mun hærri tilboð frá samningsríkjum heldur en þetta hefur hingað til verið hafnað af hálfu Íslands hjá þeim sem þá voru að gæta hagsmuna landsins. Þetta er því að engu leyti söguleg stund. Það hafa áður boðist samningar sem hafa jafnvel verið betri heldur en þessi. Það er margt sem er ósvarað fyrir þennan samning sem virðist gerður í skjóli myrkurs. Ég hef óskað eftir því, virðulegur forseti, að utanríkisráðherra og atvinnuvegaráðherra komi á fund atvinnuveganefndar til að ræða þetta frekar og gera okkur betur grein fyrir þessu máli. Ég óska liðsinnis forseta í því, í ljósi reynslunnar, (Forseti hringir.) að við þeirri beiðni verði orðið samkvæmt þingskapalögum en ekki að það verði dregið um margar vikur eins og hefur tíðkast á þessu haustþingi, ráðherrar hafa ekki sinnt slíkum erindum nema (Forseti hringir.) samkvæmt einhverjum geðþótta. Lögin eru skýr um þetta og það eru lögbrot sem hafa verið framin hérna, (Forseti hringir.) þó að enginn vilji kannast við það. Ég hvet forseta til að ganga á eftir þessu með okkur í minni hlutanum.

(Forseti (ÞSv): Og forseti hvetur hv. þingmenn til að virða tímamörk.)