157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:16]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil bara koma hér upp og segja að það hefði farið betur á því að taka vörugjöldin inn strax í september en það hefur ekki komið í veg fyrir að vinna nefndarinnar var einstaklega góð. Við tókum á móti fjölmörgum gestum og snertum á þessu máli frá, held ég, flestum hliðum. Það hefur því ekkert skort upp á þá vinnu. Svo má líka benda á að nú hefur farið fram ein lengsta umræða um bandorm í seinni umræðu sem hér hefur staðið yfir í fleiri, fleiri daga og langt fram á kvöld, þannig að ég myndi telja að það væri bara gott og að þingmenn hér inni væru nokkuð upplýstir um hvað þessi tillaga um breytingar á vörugjöldum þýðir. Við ættum því að geta gengið til atkvæðagreiðslu á eftir og verið nokkuð viss um að við þekkjum vel til málsins.