úrskurður forseta.
Virðulegi forseti. Hér eru ýmsir atburðir að gerast sem allir stefna einhvern veginn í sömu átt. Ég bið því frú forseta að standa með okkur þingmönnum í að verja sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu. Ég tek undir með þeim þingmönnum sem hófu umræðuna um gagnaöflun frá ráðuneytinu. Það er ekki ráðuneytisins að ákveða hvað þingið þarf, það er þingið sjálft. Við höfum séð núna, eins og ríkisstjórninni er tamt að tala um, sögulegt samkomulag, í fyrsta sinn sem menn hafa náð samningum. Það hefði verið hægt að gera það hvenær sem er ef við hefðum bara lagst niður og samþykkt tilboðin frá Evrópusambandinu eða Noregi eða öðrum. Við gerðum það bara ekki. Við stóðum í lappirnar. Á sama tíma vörðum við allri okkar orku í að verja sjálfbærar veiðar og koma þeim skilaboðum skýrt út að við værum á þeirri vegferð. Það er margt sem þarf að svara í umræðu um þennan samning sem hefur verið gerður í skjóli myrkurs, (Forseti hringir.) þó að það sé rétt að upplýst hafi verið að menn hafi verið að vinna að slíkum samningi. (Forseti hringir.) Það hefur verið unnið að honum í 15 ár. Niðurstaðan var hins vegar sögulegt tap og eftirgjöf á hagsmunum Íslands.