úrskurður forseta.
Frú forseti. Það er rétt að taka það fram að það hefur borist ósk þess efnis að atvinnuveganefnd komi saman vegna makrílsins og auðvitað tek ég vel í það eins og aðrar beiðnir hv. þingmanns. En það er rétt að vekja athygli á því að makrílstofninn var endurmetinn í haust af Alþjóðahafrannsóknaráðinu og matið hljóðaði upp á liðlega fjórfalt stærri stofn en áður var metið. Það tel ég vera það stóra í þessu máli, að makrílstofninn sem var metinn 2,6 milljónir tonna 2012 er núna allt í einu kominn í 11,2 milljónir tonna. Það segir okkur að það er búið að vera vanveiði öll þessi ár á makríl. Það hefur ekki verið nein ofveiðihætta heldur hefur stofninn minnkað þrátt fyrir vanveiðina. Ég tel að það sé einmitt það sem við ættum að ræða í atvinnuveganefndinni, hvers vegna í ósköpunum stofninn gefur eftir svona svakalega þegar það er ljóst að það hefur verið vanveiði.