úrskurður forseta.
Frú forseti. Eina ferðina enn tel ég ástæðu til að lýsa áhyggjum mínum við hæstv. forseta af því hvernig núverandi ríkisstjórn gengur fram gagnvart Alþingi. Alþingi var ekki haft með í ráðum þegar kom að því að gefa eftir á ótrúlegan hátt hagsmuni Íslands, einu sinni sem oftar hjá þessari ríkisstjórn, hagsmuni Íslands í fiskveiðimálum varðandi makrílinn. Greinin var heldur ekki höfð með í ráðum hér, ólíkt því sem tíðkast í hinum löndunum sem verið er að semja við þar sem greinin er best í stakk búin til þess að leiðbeina og takast á um þá hagsmuni sem þarna voru undir. Í staðinn er farin sú leið að gefa einfaldlega allt eftir. Hv. þingmenn stjórnarliðsins virðast ekki einu sinni hafa verið með í ráðum því að hér kom hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir upp og lýsti sérstökum áhyggjum af stofnstærð makrílsins. Það er einmitt eitt af því sem er gagnrýnt við þetta fráleita samkomulag, að þar er vikið frá áherslum Íslendinga á að vernda stofninn með mjög afgerandi hætti og ekki einu sinni búið að klára samninga við Grænland og Evrópusambandið sem einhverra hluta vegna ásælist makrílinn eins og margt annað.