úrskurður forseta.
Frú forseti. Mig langar að ræða hér aðeins þetta makrílsamkomulag sem við fréttum af í morgun. Hv. formaður utanríkismálanefndar kemur hér upp og segir að þetta hafi verið kynnt í trúnaði 10. nóvember í utanríkismálanefnd, í trúnaði. Það er ekkert hægt að ræða það. Hverjum dettur í hug að gera svona samkomulag nema Viðreisn? Hverjum dettur það í hug? Fara úr 16,5% í 10,5%, gengist undir skilyrði Norðmanna sem færa störf og tekjur frá Íslandi til Noregs. Grænland skilið eftir. Vísindaleg ráðgjöf virt að vettugi. Þetta mun leiða til ofveiði og fara gegn öllum okkar prinsippum, einnig varðandi sjálfbærar veiðar og vinnslu. Þvílík hagsmunagæsla, segi ég. Er það hagsmunagæsla að fórna hagsmunum Íslands? Það finnst mér ekki.