157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:24]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp og tek undir ákall hv. þingmanna um atbeina hæstv. forseta við það að vernda lýðræðishlutverk okkar þingmanna hér á Alþingi. Mig langaði aðeins til að koma inn á hlutverk og verklagið í hv. utanríkismálanefnd. Ég fagna því sem formaðurinn tilkynnti hér í pontu rétt áðan, hv. þingmaður, um að við fáum fund í fyrramálið. En það er og hefur verið umræða, bæði í nefnd og hér í þingsal, um að það sé auðvitað komið út fyrir öll velsæmismörk hvernig trúnaðarskyldunni er beitt í utanríkismálanefnd og hv. þingmenn sem þar sitja múlbundnir þannig að þeir geta hvorki haft samráð við aðra, upplýst þingflokkinn sinn, né tekið lýðræðislega umræðu hér í þingsal um mál sem, eins og hæstv. ráðherra segir sjálfur, varða okkar hagsmuni mjög miklu. Eins tel ég að við þurfum að eiga samtal, mögulega með atbeina hæstv. forseta, um samráðsskylduna við hv. utanríkismálanefnd og hvernig og hvort hún sé yfir höfuð uppfyllt af ríkjandi stjórnvöldum.