úrskurður forseta.
Virðulegur forseti. Ég vildi aðeins blanda mér í umræður um gögn til fjárlaganefndar og vitna um það að fjárlaganefnd hefur fengið gríðarlega mikla og góða þjónustu frá ráðuneytum. Það má kannski segja, svona eftir á að hyggja, að við höfum spurt að mjög mörgu. Varðandi skilgreiningu á varnartengdum útgjöldum, því sem fundið er að þar, þá fengum við það svar í gær, ágætissvar, frá utanríkisráðuneytinu að það væri verið að vinna að frekari skilgreiningu í samvinnu fjármálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis, vísað til átta flokka sem miðað er við hjá Atlantshafsbandalaginu. En ég undirstrika það að þingið fær og þarf að fá að fylgjast með þessari vinnu og hafa sjálfstæða sýn á þetta vegna þess að þarna er auðvitað verið að fara inn á nýtt svið. Í aðdraganda fjármálaáætlunar hef ég væntingar um að þetta komi til okkar kasta og við fáum þá frekari gögn því að nákvæm sundurliðun, hvorki á núverandi útgjöldum né framtíðarútgjöldum, liggur ekki fyrir.