157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:30]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Endaleysan og rökþrotin hjá hæstv. ráðherrum og hv. þm. Degi B. Eggertssyni er með slíkum eindæmum. Hvernig geturðu komist að þeirri niðurstöðu að varnartengd verkefni séu 24 milljarðar ef þú ert ekki með neina skilgreiningu á því? Hvaðan kemur sú tala? Og, virðulegi forseti, við förum fram á sundurliðun á þessu og eigum rétt á því. Það er áhugavert að sjá hér forystumann í Samfylkingunni ganga til liðs við framkvæmdarvaldið og halda aftur af því að við fáum upplýsingar. Í annan stað höfum við beðið eftir forsendum fyrir vörugjöldum fyrir árið 2025 og 2026. Þær liggja fyrir en við fáum þær ekki.

Virðulegi forseti. Út af makrílmálinu og hv. utanríkismálanefnd þá hvet ég menn til að skoða 24. gr. þingskapa. Ég held að það sé rétt að hæstv. ríkisstjórn gangi alla leið og breyti þeim lögum og taki þessa grein út ef það á ekki að fara eftir henni.