úrskurður forseta.
Virðulegi forseti. Það þarf aðeins að leiðrétta þessa upplýsingaóreiðu sem er hér í gangi. Í fyrsta lagi var utanríkismálanefnd upplýst um að viðræður væru í gangi. Í öðru lagi, það sem er af og frá, að Grænlendingar hafi ekki verið inni í einu eða neinu. Þeir voru inni í samtalinu og þeir verða það áfram og það er að sjálfsögðu ætlunin að ná heildarsamkomulagi, bæði með Grænland og Evrópusambandið innanborðs. Hluti af því að við stígum þarna inn er að við erum ábyrg fiskveiðiþjóð og við höfum sterka rödd. Það er vissulega rétt sem ég tek undir, m.a. með SFS, að það veldur mér áhyggjum að það er verið að fara yfir ráðgjöf ICES. En það er samt þannig að það leiðir til 48% lækkunar á aflamarki frá fyrra ári. Með þessu samkomulagi erum við að stíga skref í rétta átt; þá átt að fara að ráðgjöf, vísindalegum veiðum, og við höfum öll hagsmuni af því að byggja upp sterkan makrílstofn. Ísland er ekki búið að minnka eða verja meiru í þetta samkomulag heldur en aðrar þjóðir. Við erum ábyrg. Við verðum að vera ábyrg í fiskveiðistjórn, bæði til skemmri og lengri tíma (Forseti hringir.) og það er gríðarlega mikil viðurkenning fyrir okkur Íslendinga að hafa fengið viðurkenningu á okkar strandríkjahlut sem er 12,5%. (Forseti hringir.) Ég skil þessar áhyggjur sem hafa komið fram en við erum að vinna málið áfram og við erum að fara inn í ábyrgari veiðar með makrílinn til skemmri en ekki síst til lengri tíma.