úrskurður forseta.
Frú forseti. Ég hef áhyggjur af hagsmunagæslu fyrir Íslands hönd, líka vegna þessa nýja samnings sem við gerum við nokkur önnur lönd og skiljum svo Evrópusambandið og Grænland eftir. Það verður auðvitað til þess, frú forseti, að veiði þessara landa verður ekkert inni í þeirri ráðgjöf sem við erum að fara eftir. Hún verður meiri. Það bætast við 100.000 tonn líklega af hálfu þessara aðila þannig að ráðgjöfin verður auðvitað í lausu lofti ef það er tekið til. Ég hef líka áhyggjur, frú forseti, ekki bara af minnkandi heildarafla okkar, minnkandi hlutdeild, heldur líka vegna þess að í samningnum er ákvæði um það að tveimur þriðju hlutum af afla okkar innan norsku lögsögunnar verði að landa í Noregi og selja þar norska síldarsamlaginu, (Gripið fram í: Nei.) sem er einokunarsamlag. Þessi fiskur (Gripið fram í: Nei, það er ekki … )kemur ekki til vinnslu á Íslandi. (Utanrrh.: Kynntu þér þetta betur.)
(Forseti (ÞSv): Forseti biður um ró í salnum.)