úrskurður forseta.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að koma inn á hagsmunagæslu og samkomulagið sem snýr að makrílnum. Það er alveg ljóst að hagsmunagæsla fyrir Íslands hönd þegar kemur að auðlindamálum er grundvallarmál fyrir okkar þjóð sem skiptir miklu máli þegar við erum að horfa á langtímasamninga. Það hefur verið margt sagt hér í þessum þingsal, það hefur verið margt sagt í fréttum og ég held að það sé alveg ljóst að forsendurnar eru óljósar. Við sjáum hv. þingmann, formann atvinnuveganefndar, tala um að stofninn sé að stækka. Við sjáum hæstv. atvinnuvegaráðherra tala um að stofninn sé að minnka. Hvort er rétt? Hverjar eru forsendurnar? Við sjáum líka að það eru óljósar upplýsingar um hvort Grænland sé með okkur eða ekki. Ég held að við vitum öll þegar við hugsum um framtíð Grænlands, framtíð norðurslóða, að okkar samband er dýrmætt og það skiptir máli að við séum að vinna náið með Grænlendingum. Mér finnst því vera mikilvægt að hæstv. ráðherra mæti á fund nefnda í fyrramálið og mér finnst líka mikilvægt að það sé gert minnisblað (Forseti hringir.) af sérfræðingum ráðuneytisins um lykilforsendur málsins sem sé dreift til þingheims svo við getum átt góðar umræður um þessi mál.