157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:36]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra talar hér um upplýsingaóreiðu. Hún virðist vera helst á þeirra heimavelli. Ísland hefur talist fullgilt strandríki frá árinu 2010, bara svo það sé alveg á hreinu. Það er enginn ágreiningur um það að það fékkst ekki sú staðfesting með þessum samningi. Augljóslega þarf nú varla að ræða það reyndar hvort Ísland sé strandríki eða ekki. Við höfum sætt ofbeldi af hálfu viðsemjenda eins og nú er búið að gera þegar kemur að þeim málum. Alþjóðahafrannsóknaráðið ráðleggur 174.000 tonna veiði á makríl. Ísland þarf að skrifa undir það að hafa viðmiðið 300.000 tonn. Við göngum gegn þeim gildum sem við höfum haft sem grundvallaratriði í allri okkar nálgun á veiðar úr nytjastofnum. Og svo bara til að toppa þetta þá voru Færeyingar og Grænlendingar nýlega að undirrita samkomulag einmitt um fiskveiðar, vísindaráðgjöf og annað. Það nær m.a. til makríls og síldar, fyrir veiðar Grænlendinga í færeyskum sjó. Hvar er samningur Íslands og Grænlands í þessum efnum, hæstv. ráðherra?