úrskurður forseta.
Virðulegur forseti. Vegna þessara orðaskipta um varnartengd útgjöld þá hygg ég að talan 24 milljarðar hafi alls ekki komið fram í máli mínu. Hún kom hins vegar fram í fyrirspurn þingmannsins til utanríkisráðuneytisins og í svarinu kemur fram að núverandi varnartengd útgjöld séu án efa hærri. Þeirri vinnu er hins vegar ekki lokið. Alþingi fær að fylgjast með henni og þetta kemur ágætlega fram í svarinu. Ég held að viðfangsefni okkar hér í þessum sal og í nefndum þingsins séu ærin og að við þurfum ekki að búa til ágreining um verkefni sem munu vonandi vinnast í góðu samstarfi og samráði á nýju ári.