157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:38]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp vegna orða hæstv. ráðherra um að hv. utanríkismálanefnd hafi sannarlega verið upplýst í þessu máli. Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem við finnum okkur í þeirri stöðu að hafa verið upplýst um eitthvað í framhjáhlaupi, bundið trúnaði, og síðar meir er einhverju fagnað, en hæstv. ráðherra og stjórnarliðar halda því fram að hér sé um tímamótaverk að ræða. Einhverjir halda því reyndar fram að þetta sé tímamótaverk vegna þess að þetta sé sérlega vondur samningur. Látum það nú liggja á milli hluta. En ég ætla bara að ítreka það sem ég segi: Hér ber mikið á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um það hvort og hvernig lögbundinni samráðsskyldu gagnvart utanríkismálanefnd sé haldið til haga. Ég óska eftir atbeina hæstv. forseta við það að koma þessum málum í skikkanlegt horf. Ég sakna þess að hæstv. ráðherra virði þetta ekki meira þar sem ég man svo glöggt eftir hennar afstöðu þegar hún var í utanríkismálanefnd (Forseti hringir.) síðustu tvö kjörtímabil í annarri stöðu og lagði þá þunga áherslu (Forseti hringir.) á þessa samráðsskyldu við hv. utanríkismálanefnd.