úrskurður forseta.
Frú forseti. Ég kem hérna upp vegna þess að orð mín hafa að einhverju leyti verið misskilin hér í fyrri ræðu. Það sem ég var að segja er að það var nýlega gert endurmat á stofninum. Það fór fram nú í haust. Endurmatið leiddi í ljós að stofninn hafði verið vanmetinn hér áður fjórfalt. Stofn sem var metinn 2,7 milljónir tonna er núna allt í einu sagður hafa verið 11 milljónir tonna árið 2012. Af því leiðir að veiðin úr stofninum hefur verið hlutfallslega minni en menn gerðu ráð fyrir út frá nýja matinu. En það er ekki þar með sagt að stofninn hafi ekki farið minnkandi. Það er alveg ljóst að hann hefur farið minnkandi. Það segir okkur að veiðin er ekki endilega að stjórna stofnsveiflunni heldur eru það aðrir þættir. Það var það sem ég var að vekja athygli á í þessari umræðu og ég vona að það komi skýrt fram.