úrskurður forseta.
Frú forseti. Hagsmunagæsla ríkisstjórnarinnar fyrir eina af undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar er að verða engin — engin. Við höfum séð hér á fyrstu mánuðum þessarar ríkisstjórnar að ráðist er mjög að sjávarútvegi á Íslandi, nú síðasta sumar með breytingu á veiðigjöldum. Það var skrifað undir samstarfssamning við Evrópusambandið um sjálfbærar veiðar sem ekki þótti við hæfi að ræða hér við Alþingi Íslendinga. Og hér er enn eitt skrefið stigið hjá ríkisstjórninni í þá átt að veikja íslenskan sjávarútveg. Ísland er að gefa eftir, það er alveg ljóst og það þarf ekki að ræða það frekar. Veiðar fara langt yfir ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Það er verulegur niðurskurður í þessum veiðum og þriðjungslækkun. Þetta mun hafa veruleg áhrif. Hér á síðan (Forseti hringir.) að þvinga íslenskar útgerðir til að selja afla sinn inn á einokunarmarkað í Noregi sem nú sætir rannsókn Eftirlitsstofnunar EFTA. (Forseti hringir.)
Ég get ekki annað sagt, og ég ætla að fá að segja það hér, forseti, að allt vinnulag hér hjá ríkisstjórninni (Forseti hringir.) og upplýsingagjöf til þingsins — að í oflæti sínu (Forseti hringir.) telur hin svokallaða verkstjórn (Forseti hringir.) Alþingi Íslendinga algjörlega óþarft. Ég ætla að minna á það, frú forseti, að það er aðför að lýðræðinu.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)