157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:46]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Varðandi þennan meinta sögulega samning um makrílveiðarnar þá vil ég bara minna á að það er ekki markmið í sjálfu sér að ná samkomulagi. Það samkomulag getur ekki verið hvaða verði sem er keypt. Það liggur fyrir, a.m.k. samkvæmt þeim fréttum sem hafa borist þingmönnum, sem eru auðvitað ekki miklar, af þessu samkomulagi, að Ísland hafi samið af sér og það getur (Gripið fram í.) haft afleiðingar í för með sér til framtíðar ef menn hafa gefið fordæmi að þessu leyti. En það er nú kannski saga Viðreisnar í sjálfu sér í samningum í utanríkismálum og við erlend öfl. Ég rifja nú bara upp gamla góða Icesave-málið sem dæmi. Það er oft þægilegt fyrir menn að reyna að ná samkomulagi fyrst og fremst og geta flaggað því fremur en innihaldinu.

Ég óska hins vegar eftir liðsinni forseta við að koma á fundi hv. atvinnuveganefndar með hæstv. atvinnuvegaráðherra til að ræða þetta mál (Forseti hringir.) og ég hygg að það færi best á því að gera það jafnvel í dag eða a.m.k. á næstu dögum, a.m.k. fyrir jól.