157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:47]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég ætlaði mér svo sem ekki að koma hingað upp aftur vegna þess að mér sýnist þetta vera býsna augljóst hvert menn eru að fara hér. En ég get ekki orða bundist eftir framgöngu hv. þingmanns og formanns Sjálfstæðisflokksins hér. Ég skil gremjuna. Hún hefur legið fyrir núna í u.þ.b. ár. En það að koma hingað upp ítrekað í umræðu um mikilvæg hagsmunamál þjóðarinnar og saka réttkjörinn meiri hluta hér á þingi um aðför að lýðræðinu, um lögbrot og eitthvað þaðan af verra sem ég ætla ekki að hafa eftir hér — þetta nær ekki nokkurri átt, hv. þingmaður. (GÞÞ: Allt satt og rétt.) Menn verða auðvitað — og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson bætir í betur — að tala saman í vörninni og best af öllu að koma með okkur í sóknina fyrir hagsmuni Íslands. Og mig langar að nefna aðeins, af því að nú les ég hér bæði að það sé okkur (Forseti hringir.) til vansa að hafa skilað Evrópusambandið eftir og síðan að hafa tekið það með og skrifað síðan undir einhvern samstarfssamning við Evrópusambandið, sem hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir (Forseti hringir.) lætur í veðri vaka að sé eitthvað slæmt. Þetta var viljayfirlýsing um sjálfbærar veiðar (Forseti hringir.) og málefni hafsins. Þetta gengur ekki að hér séu menn (Forseti hringir.) að opinbera vanþekkingu og einhvern veginn (Forseti hringir.) ótrúlega gremju yfir stöðu mála.(Forseti hringir.) Tölum um staðreyndir og förum með málið þannig. Afsakaðu forseti. [Framíköll í þingsal.]

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutímann, enn og aftur, og biður þingmenn í sal að gefa gott hljóð.)