157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:49]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Tölum um staðreyndir. Ég kem hingað upp til að taka undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni að leita liðsinnis forseta þess efnis að við greiðum úr þessari upplýsingaóreiðu sem hér er og hæstv. utanríkisráðherra og atvinnuvegaráðherra mæti nú til atvinnuveganefndar sem fyrst þar sem við getum þá farið yfir þessa hluti og að það séu allir með sömu upplýsingar um hvað hér á sér stað. Það er lykilatriði. Við getum verið hér endalaust í fundarstjórn forseta og tafið þingstörfin fram eftir öllum degi, en því betur og því fyrr sem hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. atvinnuvegaráðherra verða við þessari beiðni fáum við það á hreint hvað er hér um að ræða, því að tölurnar eru hér verulega á reiki. Og hvort við séum að fá meira eða minna eða hvort Færeyingar séu að fá þetta og Grænlendingar hitt. Við vitum það ekki og við þurfum að fá gögn á borðið til að geta tekið upplýsta ákvörðun í framhaldinu.