157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:51]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég vek athygli hæstv. forseta á því að undanbrögð hæstv. ráðherra ekki hvað síst hér kalla á viðbrögð af hálfu hæstv. forseta. Það að halda því fram til að mynda að embættismenn hafi komið í heimsókn í utanríkismálanefnd fyrir alllöngu síðan og sagt frá því að einu sinni sem oftar væri verið að ræða makríl, sagt frá því í trúnaði, án þess að upplýsa nokkuð um niðurstöðuna eða hvers væri að vænta í þeim efnum — það gengur ekki. Það er ekki samráð við Alþingi, frú forseti, heldur er frekar til þess ætlað að koma í veg fyrir að þingmenn geti tjáð sig. Svo er því bara fagnað hér að Ísland hafi verið viðurkennt sem strandríki og fyrir það megi fórna þriðjungi af hlutdeild okkar. Hverju myndi þessi ríkisstjórn fórna ef það fengist viðurkennt að Ísland væri eyja? [Hlátur í þingsal.] Hagsmunagæslan hjá þessari ríkisstjórn er ekki í lagi, frú forseti.