157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:52]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Nú hefur forseti hlýtt á 33 ræður um fundarstjórn forseta á þessum fundi og margar þeirra hafa verið lengri en ein mínúta. En látum það nú liggja milli hluta í bili. Ég treysti því að hv. þingmenn, formenn þeirra nefnda sem hér hafa verið nefndar, hafi einnig hlýtt á ræðurnar og meðtekið skilaboð frá þingheimi og vænti þess að við getum haldið þingstörfum áfram.