breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Það er rétt sem hér kom fram hjá síðasta ræðumanni að hér erum við að fara að fjalla um tillögur meiri hlutans um verulegar gjalda- og skattahækkanir á venjulegt fólk; hvort sem um er að ræða gegnum vörugjöld á bifreiðar eða að taka í burtu réttindi sem fólk hefur haft til að samskatta sig. En það sem við höfum gagnrýnt hvað harðast eru skilaboðin; uppgjöf meiri hlutans í því að ná niður verðbólgu og vöxtum með því að hækka krónutölurnar í 3,7% í stað þess að halda sig við 2,5%. Þess vegna munum við styðja minni hluta tillögur Miðflokksins, hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, í því skyni að ríkisstjórnin eigi þann möguleika að snúa af sinni vondu braut og senda út þau skilaboð að hún hafi sjálf trú á því að hægt sé að ná niður verðbólgunni. Og auðvitað hafa þessar hækkanir líka áhrif á venjulegt fólk.