breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Hér er tekjuhluti fjárlaganna. Hér eru verðlagsuppfærslur og hér eru vörugjöld sem sannarlega eru til tekjuhækkunar. En það er líka verið að lækka skatta. Það er verið er að lækka innviðagjald sem síðasta stjórn kom á. Það er verið að lækka tekjuskatt á lögaðila sem Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og fleiri hækkuðu úr 20% í 21% tímabundið og framlengdu það einu sinni en við erum ekki að framlengja það. Þeir skattar, á venjulega lögaðila og venjuleg fyrirtæki, eru að lækka. Það sem skiptir auðvitað máli í þessu líka er afkoman. Það þarf að ná tökum á hallanum til þess að ná verðbólgu niður til þess að vextir fari niður. Það er það sem þetta snýst um.