157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:57]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ríkisstjórnin leggur nú fram frumvarp um skattahækkanir á heimilin og fyrirtækin í landinu upp á hátt í 30 milljarða. Hér lagði hæstv. forsætisráðherra og einnig Samfylkingin og Viðreisn mikla áherslu á það í aðdraganda kosninga í fyrra að það yrðu ekki hækkaðir skattar á venjulegt eða vinnandi fólk. Það var líka sagt mjög skýrt í stjórnarsáttmálanum þegar hann var kynntur. Svo líða 11 mánuðir, frú forseti, og það sem fólk mun finna mest fyrir er einmitt þetta: Aukin skattheimta, aukin gjaldtaka, vörugjöld, kílómetragjald, samsköttun hjóna og fleiri breytingar. Mér finnst þetta ekki heiðarlegt. Mér finnst sú ríkisstjórn sem hér er tekin við ekki byrja vel. Ég hef áhyggjur af þeim markmiðum sem hér er lagt af stað með, (Forseti hringir.) að hér eigi að ná niður verðbólgu og vöxtum og hallalausum fjárlögum. Þau hafa talað mikið um að stefna að hallalausum fjárlögum 2027 en nú er stefnt að afgangi 2028 samkvæmt samþykktri áætlun.