157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:59]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er þakkarvert þegar einhver hv. stjórnarliði kemur upp og kannast við að það sé verið að hækka skatta. En það er ekki bara verið að hækka skatta, það er verið að svíkja kosningaloforð. Það er verið að hækka skatta á venjulegt fólk. Það er kaldhæðnislegt þegar stjórnarliðar reyna með veikum mætti að vekja athygli á því að þeir séu að lækka skatta og vísa þá til innviðagjaldsins sem var klárað hérna rétt fyrir kosningar í verkstjórninni. Það eru allir sammála um að það hafi verið mistök að vinna hlutina með þessum hætti. Það sem ríkisstjórnin er að gera er að hún er að koma hér með innviðagjöld á sterum. Hér er verið að keyra í gegn skattahækkanir þrátt fyrir að þeir aðilar sem verða fyrir þeim, og það mun skerða samkeppnisstöðu íslensku þjóðarinnar, bendi á að þeir verði að fá fyrirvara, það verði að vinna þetta betur, þá ætlar hæstv. ríkisstjórn að keyra þetta í gegn þvert á það sem lofað var fyrir kosningar. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er skattahækkun á venjulegt fólk og fyrirtækin í landinu.