157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:00]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta hlýtur að vera skrýtinn dagur fyrir meirihlutaþingmenn. Við erum hér að fara að kjósa um gríðarlegar skattahækkanir þannig að meirihlutaþingmenn munu að öllum líkindum hér á eftir kjósa með gríðarlegum skattahækkunum og svíkja þannig sín helstu kosningaloforð. Það er það sem er að gerast hérna í dag. Við verðum hér á eftir með margar breytingartillögur til að reyna að vinda ofan af þessu. En það veldur mér líka áhyggjum þegar hv. meirihlutaþingmenn tala um að þetta sé lengsta umræðan um bandorm. Þið ættuð kannski að líta ykkur nær og hugsa af hverju það sé. Er þetta kannski svona illa unnið? Og þegar hæstv. forsætisráðherra mætir í viðtal í gær og segir að skattahækkanir séu ekki að fara að bitna á tekjulægsta hópnum, þá velti ég fyrir mér: Gætum við ekki þurft aðeins meiri umræðu til að þið vitið hvað er verið að fara að samþykkja?