157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:01]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér hátt í 30 milljarða skattahækkanir hæstv. ríkisstjórnar. Það þarf engan að undra að þær hafi tekið langan tíma og enn er beðið eftir gögnum þar sem heil kerfisbreyting kemur inn í miðju ferli málsins. Allar þessar skattahækkanir eiga það sameiginlegt að þær koma verst niður á tekjulægstu einstaklingunum og minnstu fyrirtækjunum í þessu landi. Kílómetragjald er jafnhátt fyrir þann sem er með lág laun og þann sem er með há laun. Vörugjöldin og hækkun á bílunum eru jafn mikil hækkun fyrir þá sem hafa lág laun en hlutfallslega miklu hærri fyrir þá sem eru á lægri tekjum. Við höfum lagt fram fullt af breytingartillögum hvað þetta snertir í fjárlögunum. Við komum hér með þrjár aðrar breytingartillögur og munum styðja breytingartillögur frá Miðflokknum, frá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, hér á eftir. Og að sjálfsögðu munum við áfram berjast gegn þessum skattahækkunum á almenning í landinu.