157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[14:03]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Já, við erum að fara að greiða atkvæði um þessar tugmilljarða skattahækkanir og ég held að einhverjum þarna úti komi á óvart að strax sé ráðist í þær á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar. Ríkisstjórnin sýnir strax á þessum fyrstu mánuðum sitt rétta andlit, andlit vinstri stjórnar. Þetta eru að mínu mati mjög kaldar kveðjur vinstri stjórnarinnar til einstaklinga, heimila og fyrirtækja í landinu. Sú umræða sem hefur átt sér stað í aðdragandanum, sem hefur að mestu verið haldið uppi af stjórnarandstöðuþingmönnum því að þingmenn meiri hlutans hafa fáir tekið þátt í umræðunni, hefur kristallað grundvallarviðhorf til reksturs ríkisins og þess hvernig fjármunum er forgangsraðað, þ.e. hvort skynsamlegra sé að hækka álögur á heimili og fyrirtæki eða bregðast öðruvísi við þegar þarf að eiga fyrir verkefnum og innviðum.