breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Hér flæða skattarnir yfir. Það eru allir og amma þeirra undir þegar kemur að skattasýki vinstri stjórnarinnar. Vörugjöld á ökutæki upp á 7,5 milljarða, krónutöluhækkanir langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans, afnám samsköttunar hjóna, afnám séreignarsparnaðar til að greiða skattfrjálst inn á íbúðalán, kílómetragjöld o.s.frv. Stöðugleikareglan eða skattareglan er kolfallin. Og af því að hæstv. ríkisstjórn er nú mikið gefin fyrir að greiða út jólabónusa þá er það alveg sérstakur jólabónus sem heimilin munu fá núna eftir áramót og það er að verðtryggðar skuldir heimilanna munu líklega hækka um 20 milljarða að mati verkalýðsforystunnar og Samtaka atvinnulífsins.